Svæðisskipulag Suðurnesja 2024 - 2040

Að endurskoðun Svæðisskipulags Suðurnesja standa sveitarfélög Suðurnesja: Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær og Sveitarfélagið Vogar. Auk þeirra nær skipulagið til Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar og Landhelgisgæslunnar fyrir hönd öryggis- og varnarsvæða.
Margvíslegar breytingar hafa orðið á mikilvægum forsendum sem snúa að Suðurnesjum. Vegna þessara breytinga var ákveðið að endurskoða stefnu svæðisskipulagsins um auðlindir, samgöngur og veitur, atvinnu og samfélag. Jafnframt er lögð fram stefna sem tekur til náttúruvár, loftslagsmála, auðlinda, innviða og heimsmarkmiða.
Tilgangur með endurskoðun svæðisskipulagsins er jafnframt að draga fram mikilvægi þeirra fyrir hagsmuni Suðurnesja og móta þá umgjörð sem þarf til að tryggja fjölbreytta hagsmuni samfélags, umhverfis og efnahags.
Unnið með VSÓ ráðgjöf.
Svæðisskipulag Suðurnesja 2024 - 2040 var samþykkt júní 2026.

Dagsetning

2026

Viðskiptavinur

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum