Nauthólsvegur 83D – Íbúðakjarni

Um er að ræða íbúðakjarna með 8 íbúðum auk aðstöðu fyrir starfsfólk sem sinnir ýmis konar þjónustu við íbúana. Íbúðirnar eru sérstaklega hannaðar með þarfir fatlaðs fólks í huga. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan, klætt álklæðningu. Fjölbýlishúsið er þrjár hæðir og mun rísa á lóð Háskólans í Reykjavík á skógi vöxnum og skjólsælum stað við Öskjuhlíðina. Lóð er sameiginleg með nemendagörðum HR sem einnig eru á lóðinni.

Dagsetning

2024

Viðskiptavinur

Félagsbústaðir

Heildarstærð:   780 m²
Fjöldi íbúða:        8

Reitur A