logo
Verkefni
Fyrirtækið
Greinar
Hafa samband

Fyllingsdalen - Rammaskipulag

Verkefnið fólst í rýni uppbyggingarmöguleika í Fyllingsdalen, úthverfi Bergen, og var unnið í samstarfi við norsku arkitektastofuna OG arkitekter. Teymið var valið til tillögugerðar í forvali á Evrópska efnahagssvæðinu. Skipulagstillagan er heildarsýn á mögulega uppbyggingu og verður nýtt við stefnumörkun í skipulagsendurskoðun. Skipulagssvæðið er lykilsvæði í aðalskipulagi Bergen. Miðbiki hverfisins er breytt frá yfirbyggðum verslunar- og þjónustukjarna og dreifbyggðu athafnasvæði í lífæð sem liggur þvert á dalinn. Áhersla er lögð á sjálfbærni í vistvænni byggð og umhverfi í Fyllingsdalen.

Dagsetning

2012

Viðskiptavinur

Bergen kommune

Stærð skipulagssvæðis:     375 ha
Nýr íbúafjöldi: 15.000
Ný störf: 4000

Greinargerð / hefti tillögu