Fjölbýlishúsið er 3. áfangi uppbyggingar nemendagarða Háskólans í Reykjavík og er reist skv. deiliskipulagi og hönnun Kanon arkitekta. Um er að ræða þriggja hæða fjölbýlishús auk kjallara. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan. Útveggir eru klæddir með álklæðningu. Húsið er á austurhluta lóðar, í fallegu og skjólsælu umhverfi Öskjuhlíðar.
Lóð er sameiginleg fyrir alla byggingaráfanga.
Dagsetning
2023
Viðskiptavinur
Grunnstoð ehf / Jáverk ehf