Fjölbýlishúsið við Nauthólsveg 85 er reist skv. deiliskipulagi og hönnun Kanon arkitekta. Lóðin er staðsett í vesturjaðri Öskjuhlíðar og nýtur auk þess nálægðar við Vatnsmýri og hjarta miðborgar. Húsið er annar áfangi uppbyggingar nemendagarða HR við Nauthólsveg í Reykjavík. Um er að ræða fjölbýlishús 3-5 hæðir auk kjallara. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan. Útveggir eru klæddir með álklæðningu. Lóð er sameiginleg fyrir alla byggingaráfanga.
Dagsetning
2019
Viðskiptavinur
Grunnstoð ehf / Jáverk ehf